Mig langar að benda fólki sem hefur áhuga á lýðræðishugtakinu á að kynna sér Hugveituna. Hún er hugarsmíð Guðmundar Ágústs Sæmundssonar, samnemanda úr HHS náminu á Bifröst, en eins og segir á heimasíðu hans:
“Hugveitan er ýtarlega unnin hugmynd að vefhugbúnaði sem bætt getur lýðræðið á Íslandi til mikilla muna. Hugmyndin varð til í kringum árið 2001 en hefur tekið miklum breytingum síðan þá. Hún er ekki orðin að veruleika ennþá, en með aðstoð áhugasamra getur hún orðið það innan tíðar.”
Allar nánari upplýsingar um hugmyndina er að sjá á heimasíðu Guðmundar sem ég vísa í hér að framan svo ég sleppi allri frekari kynningu eða málalengingum um hana hér.
Snilldarhugmynd á réttum tíma sem ég hvet alla til að skoða með opnum huga.
Filed under: Allt um ekkert