Við mæðgur fórum í dag og versluðum nýtt hjól fyrir átta ára skvísuna sem átti eftir að fá afmælisgjöfina sína frá því í júlí. Við fórum nebbla í hjólatúr um hverfið í gær og þá kom í ljós, það sem reyndar vitað var, að gamla sjöþúsundkrónahjólið var bilað/ónýtt. Þar sem við erum um það bil að hefja glænýjan lífstíl þá var ekki um neitt annað að ræða en að fjárfesta í almennilegu hjóli handa gellunni.
Á heimleiðinni komum við við hjá Heiðari litla bró og horfðum á Dagvaktina frá því síðustu helgi og fórum svo heim og þrifum sameignina. Þegar því var lokið fórum við í fínan hjólatúr um hverfið. Magnað alveg hreint.
Filed under: Allt um ekkert

Alveg nauðsynlegt að eiga gott hjól
(segir sú sem á ekkert hjól og skiptist á að fá lánað hjól dætranna)
Það er gaman að hjóla
Flott hjá ykkur að hjóla saman!
Já þetta er alveg geggjað. Loksins gaman að hjóla þegar maður getur hjólað á öðru en malarvegum og þvottabrettum. Tala nú ekki um að kanna umhverfið og nágrenið með trítlunni sem er smám saman að læra á þéttbýlislífið : )