Posted on 27. September 2008 by Harpa
Við mæðgur erum búnar að vera hjá Mæju Pæju síðan í gærkvöldi. Þessi skemmtilega mynd var tekin af börnunum okkar núna áðan þar sem þau voru búin að koma sér þægilega fyrir í rúmi elstu heimasætunar að horfa á mynd í sjónvarpinu.
Filed under: Allt um ekkert | Leave a Comment »
Posted on 23. September 2008 by Harpa
Við mæðgur fórum í dag og versluðum nýtt hjól fyrir átta ára skvísuna sem átti eftir að fá afmælisgjöfina sína frá því í júlí. Við fórum nebbla í hjólatúr um hverfið í gær og þá kom í ljós, það sem reyndar vitað var, að gamla sjöþúsundkrónahjólið var bilað/ónýtt. Þar sem við erum um það bil [...]
Filed under: Allt um ekkert | 3 Comments »
Posted on 18. September 2008 by Harpa
Við mæðgur erum komnar með Karl á heimilið.
Ekki leiðinlegt. Nema honum fylgir sóðaskapur.
Við kjósum að kalla það fórnarkostnað.
Önnur okkar er mun glaðari með Kalla en hin. Þið megið geta hvor…
Filed under: Allt um ekkert | 3 Comments »
Posted on 6. September 2008 by Harpa
Í dag skrapp ég á Bifröst ásamt mömmu og Mæju sys.
Núna er ég með BA gráðu í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði.
Þokkalega sátt. Skál í boðinu!
Filed under: Allt um ekkert | 7 Comments »